Öryggi á vinnustöðum
Ráðgjöf um öryggi og efnameðferð á vinnustöðum. Úttektir, hættugreining og hættumat, öryggisskýrslur, forvarnir, slysavarnir.
EFNAVERND ehf. er viðurkennt af Vinnueftirliti ríkisins sem “Þjónustuaðili með áherslu á öryggi, slysahættu og efnamengun á vinnustöðum.”
Öryggisblöð (MSDS) - þekking og upplýsingar
í allra þágu.
Réttar upplýsingar um skaðsemi fyrir heilsu og umhverfi
eru forsenda þess að hægt sé að varast þær
hættur sem meðhöndlun og notkun efnis eða vöru
getur haft í för með sér. Öryggisblöð
á eigin tungumáli og réttar merkingar eru sjálfsögð
réttindi þeirra sem vinna með hættuleg efni. Þegar
vinnuveitandi hefur sannanlega upplýst starfsmenn um mögulegar
hættur á vinnustaðnum og þær upplýsingar
liggja fyrir og starfsmenn geta kynnt sér þær eftir
þörfum, bera vinnuveitandi og starfsmenn, að öðru
jöfnu, sameiginlega ábyrgð á slysavörnum og
afleiðingum slysa. Bótaábyrgð er þar með
talin.
![]() |
