Lyf, plöntulyf og sæfiefni
EFNAVERND ehf. sér um skjalaþýðingar, skjalagerð og/eða fylgir efnum í gegnum skráningarferlið hjá viðkomandi stofnunum með gerð umsókna og fylgiskjala, öryggisblaða, umbúðamiða og annars sem þarf til að leyfi fáist samþykkt. Umbúðamiðar eru prentaðir eða sendir í prentsmiðju strax og þeir hafa verið samþykktir þannig að varan er tilbúin til sölu þegar leyfi fæst. Æskilegt er að tilskilinna leyfa sé aflað og öryggisblöð og umbúðamiðar séu unnin sem fremst í innflutningsferli til að forðast óþarfa tafir. Skráningarferlið tekur almennt nokkrar vikur.
Hjá Efnavernd ehf. er til staðar umtalsverð reynsla í þýðingum á lyfjatextum, þ.e. samantektum á eiginleikum lyfa, (SPC) og fylgiseðlum (PIL).
Plöntulyf, stýriefni, illgresiseyðar, áburður og sæfiefni (varnarefni, efni til útrýmingar meindýra, s.s. nagdýra og skordýra), eru skráningar og leyfisskyld hjá Umhverfisstofnun. Kaupendur eiturefna þurfa að hafa leyfi til kaupa og notkunar á slíkum efnum og alla sölu ber að skrá.
Matvælastofnun veitir innflutningsleyfi fyrir áburð og önnur næringarefni fyrir plöntur og skráir innflutning.
Lyfjastofnun annast útgáfu markaðsleyfa fyrir lyf og samþykkir lyfjatexta og fylgiseðla, umbúðatexta og merkingar.